Skip to content
Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms cover

Podcast

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

heilsuhladvarp

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á vi...

Episodes

  1. Elvar og Hilmar Leonardssynir, sjúkraþjálfari og læknir og jafnframt heilbrigðisverkfræðingar sem fara sína leið í því að hámarka heilsu og deila hér með okkur vitneskju sinni og djúpum fróðleik ;)

    · 2 h 22 min

    ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta s...

  2. Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir. Höfum við einblínt um of á hitaeiningar en gleymt því sem raunverulega gerist inni í líkamanum?

    · 1 h 33 min

    ❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta s...

  3. Kannabis til lækninga | Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

    · 2 h 22 min

    🌿 Getur kannabis raunverulega verið lyf? 🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið – og hvers vegna lærðu margir læknar svo lítið um það í læknanámi? 🔬 Hvað segja rannsóknirnar og hvað hefur læknir sem hefur unnið með þúsundum sjúklinga séð í eigin starfi? Gestur okkar í Heilsuhlaðvarpinu er Dr. Bonni Goldstein, bandarískur barnalæknir og einn þekktasti sérfræðingur heims á sviði kannabínóíðalækninga. 👩...

  4. Heiti potturinn | Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

    · 1 h 11 min

    💊 SVEFNLYFJAÞJÓÐIN – HVAÐ GERIST ÞEGAR SKAMMTÍMALAUSN VERÐUR AÐ ÁRALANGRI VENJU? 😴 Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af svefn- og slævandi lyfjum. Árið 2024 var notkunin hér á landi sú næstmesta meðal þeirra 34 OECD-ríkja sem skiluðu samanburðarhæfum gögnum og á síðasta ári notuðu tæplega 25.000 Íslendingar Z-svefnlyf á borð við Imovane og Stilnoct eða önnur slævandi...

  5. Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

    · 1 h 24 min

    ✨ Hvað getum við sjálf gert til að halda húðinni heilbrigðri, sterkri og fallegri með aldrinum? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Láru G. Sigurðardóttur, lækni með sérmenntun í lýðheilsu- og taugavísindum, og annan eiganda HÚÐIN Skin clinic - og förum yfir nánast allt sem viðkemur heilbrigði húðarinnar – og sérstaklega kollageninu. 🧬✨ Húðin snýst nefnilega um miklu meira...

  6. Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

    · 1 h 25 min

    Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur, þjálfara og leiðbeinanda í Fascial Maneuvers aðferð Human Garage og stofnanda Lotus Þjálfunar. 💥 Ingunn þekkir langvarandi verki ekki aðeins af faglegri reynslu heldur af eigin raun. Eftir bílslys glímdi hún árum saman við a...

  7. Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

    · 1 h 08 min

    🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnús Þórsson, prófessor í frumkvöðlafræði við Johnson & Wales University í Bandaríkjunum og stofnanda Canna Curious Wellness. Magnús hefur um árabil rannsakað neytendahegðun, nýsköpun og kannabismarkaðinn og tekið þátt í að þróa háskólanám tengt kannabis og frumkvöðl...

  8. Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

    · 1 h 16 min

    🎙️ Að ganga aftur á bak og hvað heldur okkur ungum – í líkama og sál? Í þessum þætti fáum við til okkar Hörð Torfason, einn af litríkari og merkilegri persónum íslenskrar menningar- og samfélagssögu. Hörður er söngvaskáld, leikari, leikstjóri, leikskáld og mannréttindabaráttumaður og hefur í meira en hálfa öld látið rödd sína heyrast – bæði á sviði og í samfélagsumræðunni.  Hörður fæddist árið 194...

  9. Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir

    · 1 h 48 min

    🌿 Eigum við að hafa meira val og meira frelsi þegar kemur að okkar eigin heilsu? Í þessum þætti eigum við opið og afar áhugavert samtal við Þórarinn Ævarsson og Þórunni „Tótu“ Þórs Jónsdóttur, stofnanda og drifkraftinn á bak við alþjóðlegu ráðstefnuna Health for the Future, sem fram fer í IÐNÓ dagana 18.–20. september. Við fórum víðan völl en rauði þráðurinn var einfaldur: Hvernig getum við skapa...

  10. Sjúkdómurinn sem breytti öllu – og baráttan fyrir fleiri valkostum í heilbrigðiskerfinu | Siggi Jóhannesson | Hampur til lækninga

    · 2 h 05 min

    🎙️ Hvað gerist þegar dóttir þín greinist með einn flóknasta og sjaldgæfasta taugasjúkdóm heims – og framtíðin er allt í einu full af óvissu? Í þessum þætti ræðum við við Sigurð Hólmar Jóhannesson, Sigga Jóhannesson, um einstaka vegferð hans og eiginkonu hans Ragnheiðar Erlu Hjaltadóttur eftir að dóttir þeirra, Sunna Valdís, greindist um eins árs aldurinn með Alternating Hemiplegia of Childhood (AH...

  11. Heyrnarskerðing og áhrif á lífið og heilaheilsu | Mikilvægi snemmbærrar greiningar | Er kominn tími á heyrnarpróf? | Eva Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalæknir með sérhæfingu í heyrnarfræðum

    · 1 h 32 min

    👂 Heyrnin – eitt mikilvægasta skynfærið sem við megum ekki taka sem sjálfsögðum hlut Í þessum þætti ræðum við við Evu Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalækni með sérhæfingu í heyrnarfræðum, um heyrnina – hvernig hún virkar, hversu mikilvæg hún er fyrir lífsgæði okkar og hvað við getum gert til að varðveita hana sem lengst. Heyrnarskerðing þróast oft hægt og lúmskt og margir átta sig ekki á því hve...

  12. Hvernig verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar - hvað þurfum við að gera og hvernig viljum við eldast? María Fjóla Harðardóttir fyrrverandi forstjóri Hrafnistu

    · 1 h 12 min

    👵🏼 Hvernig viljum við eldast – og er kerfið tilbúið fyrir það sem er fram undan? Í þessum þætti ræðum við við Maríu Fjólu Harðardóttur, hjúkrunarfræðing og fyrrverandi forstjóra Hrafnistu, sem hefur áratuga reynslu af öldrunarþjónustu og einstaka innsýn í það sem þarf að breytast. Við lifum lengur, eldri borgurum fjölgar hratt og álagið á kerfið mun aukast verulega á næstu árum. María Fjóla er s...

  13. Mögnuð saga 13 ára drengs sem lamaðist skyndilega og var sagt að hann gæti aldrei gengið aftur | Magnús Helgason & Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir

    · 1 h 21 min

    Lífið breytist á einu augabragði. En von og þrotlaus vinna flytur fjöll! ✨ Sumarið 2023 breyttist líf hins 13 ára íþróttastráks Magnúsar Mána á einni nóttu þegar hann lamaðist skyndilega frá bringu og niður. Yfirlæknir spáði því að hann myndi eyða ævinni í hjólastól en fjölskyldan neitaði að gefast upp. Eftir mikla vinnu með blöndu af æfafornum náttúruaðferðum og krefjandi hátækniendurhæfingu á S...

  14. Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Svanhildur 'Sasa' Sigurðardóttir

    · 1 h 28 min

    Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Í þessum þætti ræðum við við Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur og Svanhildi „Sösu“ Sigurðardóttur um heilandi garða og mikilvægi náttúrunnar í og við sjúkrahús. Guðfinna skrifaði á sínum tíma lokaritgerð um heilandi garða og möguleika þeirra á Íslandi og hefur lengi haft sérstakan áhuga á því hvern...

  15. Er golf bara dýr og tímafrek yfirstéttaríþrótt eða leynist þar lykillinn að bættri lýðheilsu, minni einmanaleika og hraustari og hamingjusamari þjóð? | Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands

    · 1 h 27 min

    Í þessum bráðskemmtilega og kraftmikla þætti af heilsuhlaðvarpi Lukku og Jóhönnu mæta þær Huldu Bjarnadóttur, fyrsta kvenkyns forseta Golfsambands Íslands. Hulda, sem er þekkt fyrir að vera algjör „jarðýta“ sem kemur ótrúlegustu hlutum í verk, mætir þáttastjórnendum sem viðurkenna fúslega eigin fordóma og mótþróa gagnvart golfíþróttinni – en það stendur ekki steinn yfir steini þegar líður á spjall...

  16. Auður Elísabet Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og IFS meðferðaraðili – Pendúll taugakerfisins og krabbameinsgreiningar - hluti 1

    · 2 h 20 min

    Pendúll taugakerfisins – innra öryggi, IFS og krabbameinsvegferðin Í þessum þætti ræðum við við Auði Elísabetu Jóhannsdóttur hjúkrunarfræðing og IFS meðferðaraðila um taugakerfið, áföll, krabbameinsvegferðina og það hvernig við getum skapað meira innra öryggi. 🧠 Pendúll taugakerfisins Hvernig sveiflast heilbrigt taugakerfi á milli virkni og hvíldar – og hvað gerist þegar við festumst í streitu, ó...

  17. Karl Gústaf Kristinsson læknir, prófessor emeritus í sýkla- og veirufræði um hinn þögla faraldur sýklalyfjaónæmis sem er ein helsta ógn samtímans og ráð til að sporna við honum.

    · 1 h 50 min

    🎙️ Heilsuhlaðvarpið – Hinn hljóði faraldur sýklalyfjaónæmis? Í dag ræðum við eitt stærsta en jafnframt vanmetnasta heilbrigðismál samtímans – baráttuna við bakteríur sem hætta smám saman að svara þeim sýklalyfjum sem hafa bjargað ótal mannslífum undanfarna áratugi. Gestur okkar er Karl G. Kristinsson, fyrrverandi yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans, prófessor emeritus í sýklafræði...

  18. Pálmi V Jónsson öldrunarlæknir um tilgang lífsins, kjötsúpu afa síns, leyndarmálið á bak við heilbrigða öldrun og Gunnarshólma; framtíðarparadís fyrir 60 ára og eldri.

    · 1 h 53 min

    Pálmi V. Jónsson, öldrunarlækni og prófessor, hefur í áratugi verið leiðandi rödd í málefnum eldra fólks á Íslandi. Í þessum fróðlega þætti af Heilsuhlaðvarpinu brýtur Pálmi upp staðalmyndir um ellina og ræðir hvernig við getum ekki bara lifað lengur, heldur betur. Þátturinn er stútfullur af staðreyndum og sögum sem vekja fólk til umhugsunar. Pálmi deilir til að mynda góðri sögu af afa sínum sem v...

  19. Er sólin hættuleg? | Áhrif sólarinnar á líkamsstarfsemina | Áhrif blárrar birtu | Glóperur vs. LED-perur | Mikilvægi birtuumhverfisins heima | Aron Skúlason verkfræðingur

    · 1 h 32 min

    Í þessum þætti ræðum við við Aron Skúlason, verkfræðing og áhugamann um heilsu, sem heldur úti heilsusíðunni Frá toppi til táar ásamt konunni sinni Hildi Leonardsdóttur. Aron hefur sökkt sér djúpt í rannsóknir á lífeðlisfræðilegu hlutverki sólarinnar — ekki bara sem uppsprettu D-vítamíns, heldur sem einu öflugasta merki náttúrunnar inn í líkamsstarfsemina. Í umræðunni um sólina hefur mikið verið t...

  20. Kjartan Örn Sigurðsson. Hvernig tengist vinnustaðamenning bæði auknum hagnaði fyrirtækja og bættri heilsu og lífsgæðum starfsfólks?

    · 1 h 37 min

    Í þessu hlaðvarpsviðtali ræðir Kjartan Örn Sigurðsson við þær Lukku og Jóhönnu um mikilvægi vinnustaðamenningar og tengsl hennar við heilsu og vellíðan. Kjartan leggur áherslu á að mörg vandamál, sem oft eru skrifuð á kynslóðamun, megi frekar rekja til óskýrra væntinga og skorts á sameiginlegum leikreglum. Hann telur að ósanngirni og óvissa séu faldir kostnaðarliðir í rekstri sem geti leitt til ku...

  21. Anna María Björnsdóttir kvikmyndagerðarkona - „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“

    · 1 h 19 min

    🎙️ Eiturefnin í okkur – „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“  Í þessum þætti höldum við áfram umræðunni um eiturefnin í kringum okkur – efnakokteilinn sem nútímalífið hefur fært inn á heimilin okkar, í matinn, vatnið, jarðveginn, líkamann og jafnvel í börnin áður en þau fæðast. 🌍🧬 Gestur þáttarins er Anna María Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Lífrænu Íslandi og kvikmynda...

  22. Kristín Ólafsdóttir lífefnafræðingur og dósent í eiturefnafræði við HÍ um eiturefnakokteilinn í daglega lífinu - ósýnilegu efnin í umhverfinu og í okkur.

    · 1 h 23 min

    🧪 Eiturefnakokteillinn í daglega lífinu – ósýnilegu efnin í líkamanum okkar Í þessum þætti eigum við samtal við Kristínu Ólafsdóttur, lífefnafræðing og dósent í eiturefnafræði við læknadeild Háskóla Íslands, um ósýnilegu eiturefnin í umhverfi okkar — efnakokteilinn sem fylgir nútímalífinu. 🌍 Plastbyltingin, manngerðu efnin og öll efnin sem nútímasamfélagið hvílir á hafa breytt heiminum. Á sínum...

  23. Hildur Kristin Sveinsdóttir sjúkraþjálfari og eigandi Sjúkrasport um heildræna nálgun, forvarnir, íþróttir og afrek, seiglu og mörkin á milli heilbrigðrar hreyfingar og öfga

    · 1 h 05 min

    Í þættinum er rætt við Hildi Kristínu Sveinsdóttur, sjúkraþjálfara, íþróttakennara og íþróttafræðing. Hildur er fædd og uppalin á Hvolsvelli þar sem hún lærði snemma til sveitaverka í heyskap og sauðburði, og tók þátt í afar fjölbreyttu íþróttastarfi, allt frá fótbolta og frjálsum yfir í sund og blak. Eftir að hún fluttist á höfuðborgarsvæðið starfaði hún mikið sem þjálfari í heilsurækt meðfram há...

  24. Ingvar Sigurðsson býflugnabóndi um undraheim hunangsbýflugna og afurðir þeirra

    · 57 min

    🐝 Hvað vitum við í raun um hunangsbýflugur? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms fáum við í heimsókn Ingvar Sigurðsson býflugnabónda og köfum inn í einstakan heim hunangsbýflugunnar – eins merkilegasta og mikilvægasta skordýrs jarðar. 🌼🌍 Við ræðum hvernig hunangsbýflugur lifa, hvernig bú þeirra er skipulagt og hvernig þúsundir býflugna vinna saman sem eitt samfélag.  Við fj...

  25. Magni Grétarsson, sjúkraþjálfari um fasíuna og áhrif hennar á líkamsstöðu og heilsuna. Óvæntar tengingar við tunguna, hvernig við öndum, útlit og fleira.

    · 1 h 05 min

    Í þessum þætti ræðum við við Magna Grétarsson sjúkraþjálfara um eitt af áhugaverðustu kerfum líkamans: bandvefinn — eða fasíuna. Bandvefurinn er oft kallaður “netið” sem tengir líkamann saman frá toppi til táar. Hann umlykur vöðva, bein, liðamót, taugar, líffæri og jafnvel andlitið — og getur haft áhrif á hvernig við hreyfum okkur, hvernig okkur líður, hvernig við stöndum og jafnvel hvernig við el...

  26. Valgeir Magnússon og heilsan í Excel. Frá því að mælast eldri — í að yngja líkamann um 20 ár.

    · 1 h 09 min

    🎙️ Mældist eldri en hann var — og sneri þróuninni við | Valgeir Magnússon, Valli Sport Í þessum þætti fáum við til okkar Valgeir Magnússon, frumkvöðul, auglýsinga- og markaðsmann, sem margir þekkja sem Valla Sport, í einstaklega áhugavert, opið og hvetjandi samtal um heilsu, mælingar, lífsstíl og það að taka ábyrgð á eigin heilsu. 💪✨ Valgeir hefur stundað mikla hreyfingu allt sitt líf og verið h...

  27. Fida Abu Libdeh um kísil "hið gleymda næringarefni" og söguna af því hvernig unglingaveik stúlka frá Palestínu yfirsteig hindranir og varð stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica 🌋

    · 57 min

    Fida Abu Libdeh lýsir því hvernig hún flutti sextán ára gömul frá Palestínu til Íslands og yfirsteig verulegar hindranir í skólakerfinu, þar á meðal tungumálaörðugleika og lesblindu. Með menntun sinni í orku- og umhverfistæknifræði fann hún leið til að nýta kísil úr íslensku jarðhitavatni, sem áður var talið úrgangsefni, til að búa til náttúruleg bætiefni. Í viðtalinu er lögð áhersla á mikilvægi k...

  28. Kristinn Johnson hjá Eirbergi 🌿🔴👣 Heilsutæki, loftgæði, jarðtenging/grounding, rauð ljós og berfætluskór

    · 1 h 25 min

    Í þessum þætti fáum við til okkar Kristinn Johnson, framkvæmdastjóra Eirbergs, í einstaklega fróðlegt, lifandi og skemmtilegt samtal um heilsu, forvarnir, tækni og tæki sem geta stutt okkur í að hugsa betur um líkamann. 🌿✨ Kristinn er sannkallaður „nörd“ í besta skilningi þess orðs 🤓 — fullur af ástríðu fyrir því sem hann gerir og brennur fyrir því að bjóða fólki lausnir sem geta hjálpað til vi...

  29. Beta Reynisdóttir næringarfræðingur um persónulega reynslu af alvarlegum veikindum, leiðina til bata, nýja 7 daga blóðsykursnámskeiðið og tengsl sorgar og áfalla við næringu

    · 2 h 50 min

    Elísabet Reynisdóttir, næringarfræðingur og næringarþerapisti, deilir með hlustendum persónulegri sögu sinni af alvarlegum veikindum og hvernig hún nýtti næringu og andlega rækt til að endurheimta heilsuna. Hún útskýrir muninn á hefðbundinni næringarfræði og heildrænni næringarþerapíu, þar sem lögð er áhersla á samspil líkamlegrar næringar, tilfinninga og lífsreynslu. Rætt er um mikilvægi blóðsyku...

  30. Heiti potturinn með Sigurði Erni Hilmarssyni, mannréttindalögfræðingi og þingmanni um auknar valdheimildir heilbrigðisráðherra í tengslum við farsóttir.

    · 2 h 50 min

    Heiti potturinn fjallar um nýsamþykkt sóttvarnarlög og þær víðtæku valdheimildir sem heilbrigðisráðherra eru færðar í tengslum við farsóttir. Gestur þáttarins er Sigurður Örn Hilmarsson, lögmaður og varaþingmaður, sem lýsir yfir þungum áhyggjum af því að lögin skorti nauðsynlegt lýðræðislegt aðhald og skýran ramma frá Alþingi. Hann gagnrýnir að völdin séu nú að miklu leyti á hendi eins einstakling...

Similar podcasts

Popular genres